Bloggedí blogg
Hef ekki staðið mig hér, trýna tekur allan tímann. Svona er það nú.
Orð að sönnu
Það kom að því. Að öllu væri á botninn hvolft. Nú fer allt einhvern veginn. Svakaleg speki er þetta annars. En ekki eins tímabær og djúphugsuð og dagskrá Alþingis í dag.
69. þingfundur 20.01.2009 kl. 13:30
|
Forgangsakreinar!! er ekki allt í lagi þarna?! Svara mér sjálf. Neibb.
Krossgáta…
eða a.m.k. eitt orð. Dauður maður og íslenskur stafur valda verk í fæti. Ég missti af jólakrossgátunni, hrpmmff! en bætti það upp með því að klára næstu á 15 mín. Eiginlega of létt, mest gaman að þurfa að glíma svolítið með þessum gráu. Þessum sem eftir eru.Er nú einu sinni á sextugs aldri.
Ólsen, Ólsen!
Var alveg búin að gleyma hvað Ólsen (eða Jensen eða Petersen) er skemmtilegur. Sérstaklega þegar maður spilar við barnabarnið sem finnst allt fyndið sem maður bullar. Það reynir heldur ekki eins mikið á tapsárindin eins og í Veiðimanni þar sem þarf að telja slagina áþreifanlega. Er meira svona huglægt þegar maður vinnur eða tapar í Ólsen. Gæti ábyggilega lagt eitthvað útfrá þessu á heimspekilegan hátt miðað við þjóðfélagsástand en ég nenni því ekki. Eða kannski má segja: Áfram, Ólsen! (alþýðan), niður með Veiðimann! (fjárglæframenn). Sko! Nennti því eftir allt saman.
Samtaka nú!
Allir sem láta sig framtíðina varða taka þátt. http://jenfo.blog.is/blog/jenfo/entry/747941/#comment2027725 Búin að senda sjálf, koma svo, pronto!
Gustukaverk
Í dag fékk JÁJ góðan slatta af heimilispeningunum. Finnst það gustuk að hjálpa manninum, hann er með þvílíkan skuldabagga herðunum. Og þó ég og restin af þjóðinni sitji upp með grilljón silljónir vegna hans og hans líka munar ekki um einn kepp í sláturtíðinni. Keypti samt ekki slátur. Gerði svo grænmetilasanja fyrir fimm, þó við séum tvær. Ég virðist ekki geta fyrir mitt litla líf lært að elda tvo skammta. Kannski ég hafi verið matráðskona í fyrra lífi. Í mötuneyti fyrir 200 manns. Það gæti náttúrulega skýrt ýmislegt. Eins og það hvað mér leiðist óskaplega að hugsa um hvað eigi að vera í matinn, kaupa það, elda og tala ekki um ganga frá. Eitthvað að gera með karma held ég. Veit samt ekki hvernig.
Tiltekt
Ég er svoleiðis búin að taka til. Hreinsa út og lagfæra. Í pósthólfinu mínu. Hahh! Hélstu að það væri stofan, eldhúsið, baðið? Neee, það bíður betri tíma. Miklu betri. Miklu, miklu betri. Það er að segja, bráðum, ef marka má HKL. Bráðum kemur betri tíð… og allt það. Sem sagt í sumar. Sæta langa sumardaga.. Er að hugsa um að fá mér ljósatherapíulampa. Virðist ekki veita af því. Þessi færsla var í boði bankanna. Skipulagt kaos.
Lesi lesi
Vil benda á nýja tengla hér, súrefniskútarnir mínir í þessu kæfandi ástandi.
Súpa og sjónvarp
Þá er búið að ákveða, afhenda og éta verðlaunin. Vinningshafinn vissi ekki að þetta voru þau en ef hann (hún) les þetta upplýsist það hér með. Það sem sagt súpa. Og þó ég segi sjálf frá var hún sérdeilislega góð. Hún heitir Skólastjórasúpa, nenni ekki setja uppskrift hér, hægt að gúggla og nota fyrsta sem kemur. Var því ofursödd og blundaði yfir aktívistamynd í TV. Fór svo að horfa á Gott kvöld frá í gær. Þrátt fyrir Ragnhildi. Lét mig samt hafa það því Emiliana er svo skemmtileg. En þáttarstjórnandinn veldur hlutverkinu alls ekki. Asnaleg komment, barnalegt málfar, allt svo æðislegt og æðislega gaman og frábært. Ohhhh!!! Takk, smáútrás hérna. Þá get ég hætt að hugsa um þetta. Æðislegt.
Tékk(óslóvakía)
Þessi færsla er til þess eins gerð að tékka á hvort einhver lesi þetta blogg. Sá sem er fyrstur til að skrá athugasemd fær verðlaun.